Hlaðvarp SUM Podcast Por SUM samtök um áhrif umhverfis á heilsu arte de portada

Hlaðvarp SUM

Hlaðvarp SUM

De: SUM samtök um áhrif umhverfis á heilsu
Escúchala gratis

Acerca de esta escucha

Hlaðvarp SUM fjallar um áhrif umhverfis á heilsu. Rætt er við þolendur umhverfisveikinda jafnt og fræðimenn á sviðinu. Félagar í samtökunum SUM eiga það mörg sameiginlegt að hafa orðið fyrir heilsutjóni af völdum umhverfisáreitis eða þeir eiga aðstandendur sem hafa lent í slíku. Það er von okkar að geta verið skjól fyrir umhverfisveika og barist fyrir réttindum þeirra, einnig að leggja okkar að mörkum með forvarnar- og fræðslustarfi til að stuðla að heilnæmara samfélagi þar sem við getum öll dafnað. Einnig að varna því að fleiri veikist í efnasúpu nútímanns.SUM samtök um áhrif umhverfis á heilsu Economía Gestión Gestión y Liderazgo
Episodios
  • 5. þáttur - Endurheimt með Guðfinnu og Grétu
    May 12 2025

    Í þessum þætti spyrjum við spurninga sem ef til vill brenna á mörgum: Er unnt að fyrirbyggja umhverfisveikindi? Og er unnt að endurheimta heilsuna eftir að hafa veikst?

    Gestir þáttarins hafa einmitt helgað sig því að svara þessum spurningum og starfa við það að hjálpa umhverfisveikum.Guðfinna Halldórsdóttir heilbrigðisverkfæðingur og eigandi Heilsubarsins hefur alla tíð haft áhuga á heilsu. Eftir að hafa sjálf veikst vegna viðveru í rakaskemmdu húsnæði og náð bata þá hefur hennar vinna síðastliðin ár snúið að því að efla heilsu Íslendinga með góðum heilsuvenjum og hágæða bætiefnum með vefverslun sinni www.heilsubarinn.is

    Guðfinna hefur einnig sótt fjölmörg námskeið í tengslum við meðferð eftir umhverfisveikindi. Hún veitir bætiefnaráðgjöf á námskeiðinu Umhverfisveikindi hjá Endurheimt og sinnir einnig eftirfylgni í tengslum við bætiefnaprótokol.Gréta Ósk Óskarsdóttir fór af stað í rannsóknarleiðangur eftir að hún og fjölskylda hennar veiktust á heimili þeirra vegna rakaskemmda og myglu. Sú reynsla og áhugi hennar á málefninu urðu til þess að hún er nokkurs konar sérfræðingur í myglu og endurheimt í dag.

    Gréta Ósk starfar sem bætiefnaráðgjafi hjá Mamma veit best, S: 445-8828. Hún veiti ráðgjöf á staðnum en hún vinnur á breytilegum vöktum. Hægt er að senda henni skilaboð og fá ráðgjöf í gegnum tölvupóst með því að senda fyrirspurn á greta@mammaveitbest.isMarkmið þáttanna er að færa ykkur raddir umhverfisveikra einstaklinga og ólík sjónarhorn sérfræðinga. Það er mikilvægt að geta speglað sig í reynslu annarra en við bendum ykkur á að hvert og eitt mál er einstakt. Upplifun hvers og eins er flókið samspil erfða og umhverfis hvers einstaklings. Finnir þú fyrir einkennum umhverfisveikinda þá hvetjum við þig til að leita aðstoðar til sérfræðinga.
    Fleiri reynslusögur er að finna á heimasíðu SUM www.samtoksum.is og jafningjastuðning má meðal annars finna hjá samtökunum SUM. Við hvetjum þig til að skrá þig í félagið á heimasíðunni. Fallega stefið sem prýðir upphaf og endi þáttanna er úr safni Svavars Knúts tónlistarmanns. Stefið eru úr laginu Brot sem kom út á samnefndri plötu árið 2015.

    Þáttastjórnandi þáttarins er Árni Kristjánsson, aðstandandi og þolandi umhverfisveikinda.

    Más Menos
    50 m
  • 4. þáttur - Hvað segja læknavísindin um umhverfisveikindi?
    May 5 2025

    Í þennan fjórða þátt fær Árni Kristjánsson, til sín fjóra lækna, sem öll hafa á einhvern hátt reynslu af umhverfisveikindum.

    Gestir þáttarins eru þau:

    Ragnhildur Magnúsdóttir, sem er sérfræðingur í kvensjúkdómalækningum og með fjölbreyttan bakgrunn, hefur unnið í héraði og á heilsugæslu. Alltaf haft áhuga á heildrænni nálgun í læknisfræði og áhrifum umhverfis á heilsu.

    Ari Víðir Axelsson, barnalæknir og ofnæmislæknir barna. Vinnur hjá Domus barnalækningum og hefur meðal annars sinnt umhverfisveikum börnum.

    Tekla Hrund Karlsdóttir er almennur læknir með sérþekkingu á efnaskiptaheilsu. Hún er eigandi Soundhealth sem er læknamóttaka sem byggir á hugmyndafræði lífsstílslækninga (lifestyle medicine) sem byggir á vísindalegum grunni og gagnreyndum aðferðum til að fyrirbyggja, bæta meðferð og jafnvel snúa við lífsstílstengdum sjúkdómum. Hún hefur unnið mikið með orkubúskap og hvernig efnaskiptaheilsa hefur áhrif á heilsu og líðan fólks.

    Una Emilsdóttir er menntuð við Kaupmannahafnarháskóla og er nú í sérnámi í atvinnu- og umhverfislæknisfræði í Danmörku. Hún hefur sl 10 ár, samhliða námi og vinnu, haldið erindi fyrir áhugasama, með það meginmarkmið að upplýsa neytendur um skaðleg efni í nærumhverfi, sem oftast nær eru falin og óþekkt neytendum, og tengingu þeirra við langvinna sjúkdóma.

    Ekki láta þennan fróðlega þátt framhjá þér fara.


    Markmið þáttanna er að færa ykkur raddir umhverfisveikra einstaklinga og ólík sjónarhorn sérfræðinga. Það er mikilvægt að geta speglað sig í reynslu annarra en við bendum ykkur á að hvert og eitt mál er einstakt. Upplifun hvers og eins er flókið samspil erfða og umhverfis hvers einstaklings. Finnir þú fyrir einkennum umhverfisveikinda þá hvetjum við þig til að leita aðstoðar til sérfræðinga.

    Fleiri reynslusögur er að finna á heimasíðu SUM www.samtoksum.is og jafningjastuðning má meðal annars finna hjá samtökunum SUM. Við hvetjum þig til að skrá þig í félagið á heimasíðunni.


    Fallega stefið sem prýðir upphaf og endi þáttanna er úr safni Svavars Knúts tónlistarmanns. Stefið eru úr laginu Brot sem kom út á samnefndri plötu árið 2015.

    Þáttastjórnandi þáttarins er Árni Kristjánsson, aðstandandi og þolandi umhverfisveikinda.






    Más Menos
    1 h y 30 m
  • Stikla: Hver eru einkenni umhverfisveikinda?
    Apr 28 2025

    Hér les Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, forkona SUM upp pilstil um einkenni umhverfisveikinda, af heimasíðu SUM.

    Finnur þú fyrir einkennum?

    Mikið af góðu efni er að finna á heimasíðu samtakanna á www.samtoksum.is

    Þar er að finna reynslusögur, ráð og heimildarlista yfir helstu rannsóknir sem samtökin benda á, svo fátt eitt sé nefnt.


    Fallega stefið sem prýðir upphaf og endi stiklunnar er úr safni Svavars Knúts tónlistarmanns. Stefið er úr laginu Brot sem kom út á samnefndri plötu árið 2015.

    Más Menos
    6 m
adbl_web_global_use_to_activate_webcro805_stickypopup
Todavía no hay opiniones