Episodios

  • 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 8. þáttur :Örvænting
    Feb 5 2024

    Vladimir Navokov er eitt þekktasta skáld 20. aldar, en eftir þennan skapandi heimshornaflakkara liggur fjöldi skáldverka, leikrita, ljóða, smásagnasafna, fræðibóka og, merkilegt nokk, skákdæma.

    Í þessari seríu fjallar Hjalti Snær um ævi og störf þessa merka manns, og þær mörgu spegilmyndir sem verk hans kalla fram í mannskepnunni, frá Morgni Konungi til Lolitu...

    Titillag: Spanakopita

    Höfundur/flytjandi: Steve Rice

    Af pound5.com

    Tónlist í þættinum: Morgan L. Bell: "Waltz of Innocence" Gitta Alpar: "Wass kann so schön sein wie deine Liebe" (1932)
    Más Menos
    32 m
  • 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 7. þáttur : Elsku Margot
    Dec 12 2023

    Vladimir Navokov er eitt þekktasta skáld 20. aldar, en eftir þennan skapandi heimshornaflakkara liggur fjöldi skáldverka, leikrita, ljóða, smásagnasafna, fræðibóka og, merkilegt nokk, skákdæma.

    Í þessari seríu fjallar Hjalti Snær um ævi og störf þessa merka manns, og þær mörgu spegilmyndir sem verk hans kalla fram í mannskepnunni, frá Morgni Konungi til Lolitu...

    Titillag: Spanakopita

    Höfundur/flytjandi: Steve Rice

    Af pound5.com

    Tónlist í þættinum: Fred Astaire og Ginger Rogers: A Fine Romance (1936) höf. Jerome Kerns og Dorothy Fields The Postman Always Rings Twice, Opening Intro (1946) höf. Eric Zeisl Harriet Hilliard: Get Thee Behind Me Satan (1936) höf. Irving Berlin
    Más Menos
    44 m
  • 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 6. þáttur : Hetjudáð
    Sep 27 2023

    Vladimir Navokov er eitt þekktasta skáld 20. aldar, en eftir þennan skapandi heimshornaflakkara liggur fjöldi skáldverka, leikrita, ljóða, smásagnasafna, fræðibóka og, merkilegt nokk, skákdæma.

    Í þessari seríu fjallar Hjalti Snær um ævi og störf þessa merka manns, og þær mörgu spegilmyndir sem verk hans kalla fram í mannskepnunni, frá Morgni Konungi til Lolitu...

    Tónlist:

    Titillag: Spanakopita

    Höfundur/flytjandi: Steve Rice

    Af pound5.com

    Alexander Scriabin: Prelúdía nr. 2 í a-moll flytjandi: Dmitriy Lukyanov Af pond5.com
    Más Menos
    36 m
  • Síðasta lag fyrir myrkur - Þormóður Torfason: Dauðamaður og dáður sagnaritari
    Jun 26 2023

    Hjalti Snær Ægisson bókmenntafræðingur leiðir okkur inn í kvöldið með bókum, sögum, sagnfræði og tónlist í bókmenntahlaðvarpi Bókasafns Hafnarfjarðar, einn eða með góðum gestum. Sestu í uppáhaldsstólinn þinn, helltu upp á kaffi og komdu með - en bókin er Þormóður Torfason: Dauðamaður og dáður sagnaritari eftir Bergsveinn Birgisson.

    Ungur Íslendingur er sendur til að safna öllu sem hann kemst yfir á Íslandi af gömlum handritum og sögum og fara með til kóngsins í Kaupmannahöfn. Þetta er upphaf óvenjulegrar og spennandi sögu um ástríðu og forneskju, morð og skipbrot. En líka sagan af því hvernig vitneskja okkar og fróðleikur um víkingatímann varðveittist – og mátti oft litlu muna.

    Sagnaritarinn Þormóður Torfason fæddist árið 1636. Hann naut m.a. handleiðslu Hallgríms Péturssonar skálds, heillaðist ungur af fornum fræðum, varð lagsbróðir og vinur Árna Magnússonar og dvaldi við skriftir í Kristjánsborgarhöll í skjóli Danakonungs. Síðar settist hann að í Noregi þar sem hann varð einn afkastamesti sagnaritari síns tíma – en var líka dæmdur til dauða fyrir að verða manni að bana.

    Más Menos
    1 h y 11 m
  • Síðasta lag fyrir myrkur -Blá
    May 12 2023
    Síðasta lag fyrir myrkur er... Blá

    Hjalti Snær Ægisson bókmenntafræðingur leiðir okkur inn í kvöldið með bókum, sögum, sagnfræði og tónlist í bókmenntahlaðvarpi Bókasafns Hafnarfjarðar, einn eða með góðum gestum. Sestu í uppáhaldsstólinn þinn, helltu upp á kaffi og komdu með.

    Blá eftir Maju Lunde, sem segir frá Signe. Hún er komin á sjötugsaldur þegar hún heimsækir æskustöðvarnar í Noregi. Þar blasa við umfangsmiklar virkjunarframkvæmdir, og hún siglir skelkuð á braut til að hitta mann sem hún eitt sinn elskaði, í skútunni sinni, sem heitir Blá – en neðan þilja geymir hún undarlegan farm. Aldarfjórðungi síðar er David á flótta norður eftir Frakklandi með lítilli dóttur sinni. Endalausir þurrkar hafa hrakið þau að heiman þar sem miskunnarlausir eldar geisa. Dag einn finna þau vel falinn bát á eyðibýli langt úti í sveit og ótal spurningar vakna …

    Más Menos
    46 m
  • 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 5. þáttur : Augað
    May 5 2023

    Vladimir Navokov er eitt þekktasta skáld 20. aldar, en eftir þennan skapandi heimshornaflakkara liggur fjöldi skáldverka, leikrita, ljóða, smásagnasafna, fræðibóka og, merkilegt nokk, skákdæma.

    Í þessari seríu fjallar Hjalti Snær um ævi og störf þessa merka manns, og þær mörgu spegilmyndir sem verk hans kalla fram í mannskepnunni, frá Morgni Konungi til Lolitu...

    Tónlist:

    Titillag: Spanakopita

    Höfundur/flytjandi: Steve Rice

    Af pound5.com

    Tónlist í þætti:

    Friedrich Meyer-Gergs und seine Solisten: Schwarze Augen (1940) Ed Lloyd and His Orchestra: I've Got My Eye on You (1930)
    Más Menos
    33 m
  • Síðasta lag fyrir myrkur - Farþeginn
    Mar 17 2023
    Síðasta lag fyrir myrkur er... Farþeginn

    Hjalti Snær Ægisson bókmenntafræðingur leiðir okkur inn í kvöldið með bókum, sögum, sagnfræði og tónlist í bókmenntahlaðvarpi Bókasafns Hafnarfjarðar, einn eða með góðum gestum. Sestu í uppáhaldsstólinn þinn, helltu upp á kaffi og komdu með.

    Þýski rithöfundurinn Ulrich Alexander Boschwitz (1915–1942) sendi aðeins frá sér tvær skáldsögur á stuttri ævi. Sú fyrri kom út á sænsku árið 1937 undir dulnefni, en Farþeginn birtist á ensku árið 1939, fyrst í Englandi og síðan Bandaríkjunum. Fáeinum árum síðar kom út frönsk þýðing bókarinnar. Sagan var skrifuð skömmu eftir Kristalsnóttina í nóvember 1938 og segir frá gyðingi í Berlín, kaupsýslumanninum Otto Silbermann, sem hefur flúið heimili sitt og reynir eftir bestu getu að sleppa frá heimalandi sínu. Þótt Farþeginn væri skrifaður á þýsku fékkst bókin á sínum tíma ekki útgefin í Þýskalandi. En eftir að upprunalegt handrit kom í leitirnar árið 2018 var ekki eftir neinu að bíða. Útgefandinn Peter Graf fór yfir handritið og ritaði upplýsandi eftirmála um verkið. Bókin var lofuð hástöfum í þýskum fjölmiðlum og borin saman við framúrskarandi skáldverk um tímabil nasismans, enda sennilega eitt allra fyrsta verkið til að lýsa örlögum þýskra gyðinga.

    Más Menos
    47 m
  • 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 4. þáttur : Vörnin
    Feb 16 2023

    Vladimir Navokov er eitt þekktasta skáld 20. aldar, en eftir þennan skapandi heimshornaflakkara liggur fjöldi skáldverka, leikrita, ljóða, smásagnasafna, fræðibóka og, merkilegt nokk, skákdæma.

    Í þessari seríu fjallar Hjalti Snær um ævi og störf þessa merka manns, og þær mörgu spegilmyndir sem verk hans kalla fram í mannskepnunni, frá Morgni Konungi til Lolitu...

    Tónlist:

    Titill lags: Spanakopita

    Höfundur/flytjandi: Steve Rice

    Af pound5.com

    Titill lags: Vals í B-moll, op. 69 nr. 2

    Höfundur/flytjandi: F. Chopin / Lynnepublishing

    Af pound5.com

    Más Menos
    37 m
adbl_web_global_use_to_activate_webcro805_stickypopup