Hið yfirnáttúrulega Podcast Por Ghost Network® arte de portada

Hið yfirnáttúrulega

Hið yfirnáttúrulega

De: Ghost Network®
Escúchala gratis

Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.Ghost Network® Política y Gobierno
Episodios
  • 76. Ýmsar yfirnáttúrulegar verur
    Mar 4 2026

    Í dag ætlum við að kafa inn í heim yfirnáttúrulegra vera, furðulegra, dularfullra og stundum ógnvekjandi fyrirbæra sem hafa fylgt mannkyninu í gegnum aldirnar.

    Við kynnumst m.a. verum sem kallast Selkies úr Íslenskum þjóðsögum, en þetta eru selir sem geta farið úr ham sínum og breyst í menn.

    Fresno Nightkrawler er undarleg vera sem er eiginlega bara hægt að lýsa sem krúttlegir hvítir fætur og án frekari útlima. Árið 2007 náði öryggismyndavél í borginni Fresno undarlegu fyrirbæri á filmu sem síðar fékk nafnið Fresno Nightcrawler.

    Kentár er hálfur hestur og hálfur maður, þessi vera kemur úr grískri goðafræði. Kentárar bjuggu í fjöllum og skógum og voru oft taldir villtir, drykkfelldir og óstýrilátir. Þeir tákna oft frumkraft, dýrslegt eðli og togstreitu milli siðmenningar og eðlishvatar.

    Við kynnumst einnig Fönix fuglinn sem rís úr öskunni, djöfullegri veru sem kallast Keres.

    Mentioned in this episode:

    Komdu í áskrift

    d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift

    Más Menos
    43 m
  • 75. Geimfréttir með Gunnari Dan - seinni hluti
    Mar 2 2026

    Við höldum áfram þar sem við hættum með honum Gunnari Dan geimveru sérfræðing.

    Bókin Ufo 101 er að finna á flestum stöðum þar sem þú getur keypt bækur! Þetta er svo falleg og vegleg bók sem enginn áhugamaður um ójarðnensk öfl og verur ætti að láta fram hjá sér fara!

    Ufo 101:

    Við erum ekki ein! Jörðina heimsækja reglulega gestir utan úr geimnum sem búa yfir langtum þróaðri tækni en við mannfólkið. Þessar heimsóknir skilja eftir sig spor. Fjöldi fólks hefur sagt frá samskiptum við aðkomnar verur. Enn fleiri eru til vitnis um geimverur hér á jörð en óttast að stíga fram og segja frá reynslu sinni.

    En nú hefur hulunni verið svipt af sannleikanum og frekari upplýsingar eru að koma í ljós. Vitnaleiðslur fyrir Bandaríkjaþingi sýna hvernig djúpríki og leyniþjónustur rannsaka geimverur og tækni þeirra en halda vitneskju jafnframt frá almenningi.

    Gunnar Dan fjallar hér með lifandi og grípandi hætti um geimverur, fljúgandi furðuhluti og sögu samskipta mannkyns við ójarðneskar verur.

    Más Menos
    5 m
  • 74. Geimfréttir með Gunnari Dan - fyrsti hluti
    Feb 25 2026

    Í þessum þætti förum við um víðan völl og fáum að vita allt það heitasta og nýjasta í geimfréttum. Það er ekkert skemmtilegra en að kíkja í kaffi til Gunnars og heyra æsifréttirnar í ufo og geimveru heiminum!

    Gunnar er okkar helsti geimveru sérfræðingur og var hann að gefa út bókina Ufo 101 og er önnur bók í smíðum og kemur út í haust.

    Bókin Ufo 101 er að finna á flestum stöðum sem selja bækur! Við mælum svo sannarlega með að þið tryggið ykkur eintak eða leigið á bókasafni og kíkið á þessa mögnuðu bók!


    Ufo 101:

    Við erum ekki ein! Jörðina heimsækja reglulega gestir utan úr geimnum sem búa yfir langtum þróaðri tækni en við mannfólkið. Þessar heimsóknir skilja eftir sig spor. Fjöldi fólks hefur sagt frá samskiptum við aðkomnar verur. Enn fleiri eru til vitnis um geimverur hér á jörð en óttast að stíga fram og segja frá reynslu sinni.

    En nú hefur hulunni verið svipt af sannleikanum og frekari upplýsingar eru að koma í ljós. Vitnaleiðslur fyrir Bandaríkjaþingi sýna hvernig djúpríki og leyniþjónustur rannsaka geimverur og tækni þeirra en halda vitneskju jafnframt frá almenningi.

    Gunnar Dan fjallar hér með lifandi og grípandi hætti um geimverur, fljúgandi furðuhluti og sögu samskipta mannkyns við ójarðneskar verur.

    Mentioned in this episode:

    Galdrabox

    Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur

    d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift

    Komdu í áskrift

    Más Menos
    50 m
Todavía no hay opiniones