VR hlaðvarpið Podcast Por VR stéttarfélag arte de portada

VR hlaðvarpið

VR hlaðvarpið

De: VR stéttarfélag
Escúchala gratis

Hlaðvarp VR stéttarfélags um réttindi, vinnumarkaðinn og málefni sem snertir félagsfólk og samfélagið allt.© 2025 VR stéttarfélag Economía Gestión Gestión y Liderazgo
Episodios
  • 21.000 skref á dag - Konur í verslun
    Jul 31 2025

    Félagsfólk VR vinnur við fjölbreytt störf í þjóðfélaginu en rætur félagsins liggja í verslun. Það er því vel við hæfi að hefja þessa þáttaröð með konum í verslun. Hér ræðir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, við þær Alexandriu Petrinu Arnarsdóttur hjá Ikea, Guðrúnu Maríu Jóhannsdóttur hjá Húsasmiðjunni og Guðnýju S. Bjarnadóttur hjá Vero Moda um starfið í versluninni, vinnuumhverfið og helstu áskoranir í starfinu. Þær ræða einnig kvennabaráttuna, jafnrétti, fordóma ásamt því að tala opinskátt um blæðingar, barnsburð og breytingaskeiðið.

    Más Menos
    54 m
  • Konur í VR - Stikla
    Jun 27 2025

    Konur í VR

    VR hleypir nú af stokkunum hlaðvarpinu Konur í VR þar sem formaður félagsins, Halla Gunnarsdóttir ræðir við VR konur í hinum ýmsu störfum. Tilefnið er Kvennaár 2025 en í ár eru fimmtíu ár frá fyrsta kvennaverkfallinu 24. október 1975 þegar íslenskar konur lögðu niður launuð og ólaunuð störf og samfélagið lagðist á hliðina. Árið í ár er helgað konum og þátttöku þeirra í samfélaginu.

    Markmið með hlaðvarpinu er að bregða ljósi á hin ólíku störf sem konur gegna innan VR og veita innsýn í reynslu þeirra á vinnumarkaði. Margt hefur breyst til hins betra á hálfri öld en engu að síður er enn langt í land að konur og karlar standi jafnfætis á vinnumarkað. Hlaðvarp VR er ein leið til að auka sýnileika kvenna og efla enn frekar umræðuna um réttindi og frelsi þeirra.

    Más Menos
    1 m
Todavía no hay opiniones