Tvær á báti Podcast Por Álfrún Tryggvadóttir og Linda Heiðarsdóttir arte de portada

Tvær á báti

Tvær á báti

De: Álfrún Tryggvadóttir og Linda Heiðarsdóttir
Escúchala gratis

Álfrún Tryggvadóttir og Linda Heiðarsdóttir eru tvær miðaldra hlaupakonur sem hafa náð góðum árangri í hlaupum í aldursflokknum 40 – 49 ára. Þær þreytast ekki á að tala um hlaup og setja sér ný markmið. Í hlaðvarpsþættinum Tvær á báti ræða þær um hlaup út frá ýmsum hliðum, fá til sín góða gesti og segja hlaupasögur. Fyrst og fremst eru þær þó venjulegar konur að gera hlaðvarp fyrir venjulega hlaupara.© 2025 Carrera y Trote Higiene y Vida Saludable
Episodios
  • Parísardömurnar
    Mar 20 2026

    Katrin.is kíkti í settið með hlaupasöguna frá París og fór yfir farsælan feril. Heyrðum líka í Fjólu í Fætur toga sem sagði okkur frá undirbúningi fyrir fyrsta Laugaveginn sem hún ætlar að hlaupa í sumar og gaf okkur góð ráð varðandi val á hlaupaskóm.

    Más Menos
    1 h y 1 m
  • Næstum komnar á beinu brautina og ræðum brautina!
    Mar 3 2026

    Linda og Álfrún eru næstum komnar aftur á beinu brautina eftir að hafa lagt allt í sölurnar í maraþoni fyrir tæpum þremur mánuðum. Þær ræða einnig brautina, MÍ öldunga, MÍ 2026, hálft í París eftir viku og langan aðskilnað í febrúar.

    Más Menos
    49 m
  • Þjálfari ársins
    Feb 13 2026

    Þjálfari ársins hjá Þrótti, Jens Elvar Sævarsson mætti sem gestur og gestastjórnandi í fjarveru Álfrúnar. Hann er án gríns alltaf í góðu skapi og segist tileinka sér jákvæða hluti í fari annarra. Haustið 2025 byrjaði hann með hlaupahóp Þróttar og stefnir á að ná fjöldanum upp í 100 meðlimi. Það skemmir svo ekki fyrir að honum finnst hrikalega gaman að rausa um hlaup og heilbrigðan lífsstíl og smellpassaði því í settið.

    Más Menos
    1 h y 26 m
Todavía no hay opiniones