Episodios

  • The Complete Guide to Mergers and Acquisitions - Þegar Kjartan keypti Ormsson
    Oct 16 2023

    Í þessum þætti fjallar Kjartan um The Complete Guide to Mergers and Acquisitions og um leið hvernig hann nýtti sér hana þegar hann keypti fyrirtækið Ormsson.


    Más Menos
    1 h y 20 m
  • Executive Presence - Framkoma bestu stjórnendanna? Andrés Jónsson
    Mar 30 2022

    Gestastjórnun

    Í þessum þætti kemur Andrés Jónsson stjórnendaráðgjafi í heimsókn og ræðir bókin Executive Presence eftir Sylwia Hewlett. Í bókinni er farið yfir umfangsmikla rannsókn þar sem skoðaðir voru þær þættir í framkomu sem mestu máli skipta. Við ræðum þessa þætti, segjum sögur og pælum í því hvernig við getum tileinkað okkur þá í þessu fróðlega spjalli.


    Más Menos
    Aún no se conoce
  • So You’ve Been Publicly Shamed - Opinber smánun á okkar tímum
    Jan 31 2022

    So You’ve Been Publicly Shamed kom árið 2015 eftir Jon Ronson og tekur á útilokunarmenningu.
    Við ræðum í þessum þætti bókina efni hennar auk fleiri anga eins og samfélagsmiðla og hvernig smávægileg komment geta orðið að snjóflóði.


    Más Menos
    1 h y 39 m
  • Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar - Skuldsett yfirtaka
    Sep 30 2021

    Einn mesti frumkvöðull Íslandssögunar og annar stofnandi Bónusveldisins fer hér yfir feril sinn frá Bónus og alla leið til FL-Group, Glitnis og dómsstóla. Svo er ferðast um útrásina til Bandaríkjanna,Stóra Bretlands, Sullenberger, Jónína Ben, Magasin Du Nord, Iceland, Arcadia og auðvitað Gunnar Smári koma líka við sögu. .
    Við ræðum bókina og þennan merkilega mann Jón Ásgeir og arfleið hans.
    Málsvörn er fyrsta íslenska bókin sem við tökum til skoðunar. Vonandi samt ekki sú síðasta.

    Más Menos
    1 h y 40 m
  • Ten Deadly Marketing Sins - Markaðssyndirnar
    Sep 14 2021

    Ten Deadly Marketing Sins eftir Philip Kotler kom út árið 2004.
    Í þessum þætti ræðir Kjartan um hvernig hann nýtti sér þessa bók þegar hann keypti ásamt félögum sínum hið gamalgróna fyrirtæki Ormsson .


    Más Menos
    1 h y 38 m
  • Influence - hvaða sex lögmál hafa áhrif á hegðun okkar?
    May 30 2021

    Influence - the Psychology of Persuasion kom fyrst út árið 1984 var svo endurútgefin árin 1994 og 2006. Í ár 2021 verður bókin svo endurútgefin í enn stærri útgáfu þar sem höfundur bætir við einu lögmáli til viðbótar sem hann nefnir Unity.

    Höfundurinn Robert Caldini er doktor í sálfræði. Í þessari bók er farið í gegnum sex lögmál sálfræði og mannlegrar hegðunar og hvernig þau hafa áhrif á okkur. Þetta er ein af þessum bókum sem allir ættu að lesa helst sem börn svo við getum sjálf nýtt okkur þessi lögmál en ekki síður áttað okkur á þeim þegar þeim er beint að okkur.

    Bókin hefur selst í yfir 5 milljónum eintaka og er aðgengileg á Amazon og Audible




    Más Menos
    1 h y 40 m
  • Made in America - Hvernig Walmart, stærsta fyrirtæki í heimi varð til
    May 15 2021

    Made in America er sjálfsævisaga Sam Walton stofnanda Walmart. Hann skrifaði bókina á dánarbeðinu 1992 en í þessari einlægu frásögn fer hann yfir það hvernig hann fór frá því að eiga ekki neitt í að byggja upp það sem er í dags stærsta fyrirtæki í heimi með $540 milljarða veltu.
    Ef þú hefur áhuga á sögu verslunar í heiminum, ert að leita að innblæstri, vilt læra af mistökum annarra og fræðast um einn merkasta frumkvöðul síðari tíma þá er þetta bók fyrir þig.

    Bókina er hægt að nálgast á Amazon.
    Hana er hægt að fá sem hljóðbók á Audible

    Más Menos
    1 h y 38 m
  • The Startup of You - Taktu stjórn á eigin starfsframa
    Apr 30 2021

    The Start up of You kom út árið 2012.
    Höfundar eru Reed Hoffman, einn stofnenda Paypal og Linkedin og Ben Casnocha.
    Í bókinni er farið yfir hvernig við verðum að hugsa starfsferil okkar á annan hátt. Áður dugði að fá góða vinnu hjá stöndugu fyrirtæki og ef maður stóð sig vel þá óx maður og fékk framgang. Slík línuleg þróun á ekki við í dag og mæla höfundar með að við nálgumst starfsferill okkar eins og um væri að ræða rekstur á sprotafyrirtæki (Startup). Ferill okkar flestra sé sjaldnast línulegur heldur sé einkennist hann af því að fara upp og niður eftir tímakvarðanum.

    Í bókinni er farið yfir og við ræðum í þessum þætti.

    • Við verðum að skilgreina okkur - sérstöðu, gildismat og framboð og eftirspurn eftir færni og hæfileikum okkar.
    • Við eigum að vera tilbúin að breyta um kúrs.
    • Tengslanetið sé eitt það mikilvægasta sem við eigum. Farið er yfir hvernig maður byggir upp og viðheldur tengslaneti.
    • Mikilvægi þess að við grípum stóru tækifærin þegar þau gefast.
    • Áhættu hvernig mannkyn ofmetur áhættu og mikilvægi þess að við tökum áhættu á skipulagðan hátt.

    Bókina má nálgast á Amazon
    Og hún er aðgengileg á Audible

    Más Menos
    1 h y 11 m